Árið 2000 leit listahátíð LungA dagsins ljós í fyrsta sinn.
Um er að ræða listahátíð þar sem sköpun, listum og menningu er fagnað með námskeiðum, fyrirlestrum og öðrum viðburðum sem lýkur með uppskeruhelgi: sýningum og tónleikum.
Hátíðin er frábær blanda af listum, sköpun, tjáningu og stórbrotinni náttúru. Hún hefur getið sér gott orðspor, bæði á Ísland og út fyrir landsteinana fyrir frábært andrúmsloft, námskeið af miklum gæðum og með mikilli virkni þátttakenda. Ennfremur færir hátíðin gleði, sjálfsþekkingu, elskendur, nýja vini og góðar minningar fyrir þá sem sækja hátíðina heim.
LungA „fjölskyldan“ samanstendur nú bæði af árlegri listahátíð og skóla. Dagsdaglega er þetta tvennt rekið sitt í hvoru lagi, en heitið, gildin og hugmyndafræðin eru af sama meiði.
HVIRFILL
Þema hátíðarinnar í ár er Spírall eða Hvirfill og vísar til sköpunargleðinnar, vina og stuðningsnet LungA yfir árin. Í ár fagnar hátíðin LungA fjölskyldunni, vinum og fyrrum þátttakendum. Þar munu fyrrum þátttakendur koma saman og fagna sögu hátíðarinnar. Við viljum þakka öllum þeim sem hafa lagt hönd á plóg yfir árin með því að kveðja hátíðina sem hefur snert líf svo margra upprennandi listamanna með kveðjuathöfn sem sæmir orðspori hennar. Markandi endalok hátíðarinnar en með von um upphafi annarstaðar í grassróttinni líkt og LungA fyrir 25 árum.
Við vonumst til þess að sjá ykkur sem flest á LungA í ár.